Hestamannafélagið Gnýfari

Hestamannafélagið Gnýfari

Velkomin(n)

Velkomin(n) á heimasíðu Hestamannafélagsins Gnýfara í Ólafsfirði.

Fréttir

Landsmótsnefnd á faraldsfæti

Landsmótsnefnd á faraldsfæti Á stjórnarfundi í Landssambandi hestamannafélaga þann 12. ágúst síðast liðinn, var ákveðið að landsmótsnefnd sú er stofnuð var haustdögum 2010, færi út í hestamannafélögin í landinu til að kynna skýrslu sína, niðurstöður og umfjöllunarefni og svara fyrirspurnum fundarmanna. Nefndin, sem fjallaði um landsmótin í nútíð og framtíð, mun hefja fundaherferðina á Akureyri föstudaginn 2. september n.k. Daginn eftir yrðu svo fundir á Egilsstöðum og Höfn í Hornafirði. Í kjölfarið eru fyrirhugaðir samskonar kynningarfundir á Suðurlandi, í Reykjavík, á Vesturlandi og Norðvesturlandi vikuna eftir. Nánari tímasetningar og dagsetningar verða auglýstar eftir helgi. Hér má skoða skýrslu nefndarinnar í heild sinni.http://lhhestar.is/static/files/LM%20skyrsla%20final.pdf Stjórn LH hvetur alla hestamenn til að kynna sér innihald skýrslunnar og koma af stað málefnalegum umræðum á fundunum sem næst þeim verða haldnir. Í nefndinni sitja eftirtaldir einstaklingar: Sveinbjörn Sveinbjörnsson formaður, skipaður af LH Birgir Leó Ólafsson, skipaður af LH Stefán Haraldsson, skipaður af LH Sigrún Ólafsdóttir, skipuð af BÍ Kristinn Guðnason, skipaður af BÍ Auk fulltrúa nefndarinnar mun Haraldur Þórarinsson formaður LH koma á fundina. Með góðri kveðju, Stjórn LH.

Firmakeppni Gnýfara 2011

Firmakeppni hestamannafélagsins Gnýfara verður haldin laugardaginn 20.08 n.k. kl. 14.00 á velli félagsins. Skráning keppenda fer fram á staðnum og skal henni lokið kl. 13.15 Mótanefnd Félgsmenn Gnýfara eru minntir á karla- og kvennareið sem farnar verða seinni part þess 20.08. Uppl. veita Jónas Baldurs í s. 864-4355 og Kristín Andresar í s. 866-2115

Hestadagar Siglufirði 2011



Til upplýsinga

Ágæti hestamaður, fyrir skemmstu opnaði Félag hrossabænda nýjan vef á slóðinni www.icehorse-experience.is Við leitum til þín eftir hjálp við að virkja mátt internetsins til dreifingar á þessu kynningarefni. Með því að senda öllum vinum og vandamönnum erlendis tengil inn á vefinn leggur þú þitt af mörkum til að kynna íslenska hestinn og hestaferðir á Íslandi. Einnig má fara inn á vefinn og senda þar rafræn póstkort sem er skemmtileg leið til að vekja athygli á vefsíðunni. Þeir hestamenn sem eru með eigin heimasíður geta líka óskað eftir að fá senda hnappa eða borða til að setja upp á eigin síðum með tengingu inn á vefinn. Þeir sem hafa áhuga á því geta haft samband við Félag hrossabænda í gegnum netfangið fhb@fhb.is Á www.icehorse-experience.is má sjá 12 mismunandi myndbrot, en ætlunin er að fjölga þeim og auka fjölbreytileika. Einnig er að finna á vefnum greinargóðar upplýsingar um íslenska hestinn og uppruna hans en hlutverk vefsins er að vekja athygli á hrossum fæddum á Íslandi og sérstöðu hrossaræktar og uppeldis hér á landi þar sem frelsið og víðáttan spila stórt hlutverk. Eins og hestamenn vita setti smitandi hósti í hestum á síðast ári sitt mark á hestamennskuna og gríðarlegt tap varð í atvinnugreininni. Því er nauðsynlegra en nokkru sinni fyrr að kynna íslenska hestinn, sækja á erlenda markaði og fara nýjar leiðir. Með www.icehorse-experience.is er leitast við að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi í markaðssetningu og kynningu íslenska hestsins og hestaferða á Íslandi. Á vefnum má fara „á bak“ í rafræna reiðtúra og kynnast íslenska hestinum í íslenskri náttúru. Myndskeið eru tekin upp frá sjónarhóli knapans og áhorfandinn upplifir hvernig það er að sitja íslenskan hest og njóta náttúrunnar í leiðinni. Áhorfandinn heyrir taktinn, sér faxið flaksa í fang sér, horfir á umhverfi og samferðafólk og upplifir Ísland og íslenska hestinn beint í æð. Leggjumst öll á eitt og hjálpumst við að kynna íslenska hestinn úti um heiminn! www.icehorse-experience.is Kær kveðja/Best regards

Mynd augnabliksins

magnus_a_011176_1.jpeg

Svæði

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf